Innleiðing gengur vel
Leikskoli_minni_IMG_3162
Vestmannaeyjabær er að hefja sitt þriðja ár í að vinna eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna en opnað var fyrir umsóknir í byrjun árs 2022. Eyjar.net/TMS

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja tók fyrir samþætta þjónustu í þágu farsældar barna á fundi sínum í liðinni viku. Þar fór umsjónarfélagsráðgjafi yfir stöðu samþættrar þjónustu í þágu barna.

Vestmannaeyjabær er að hefja sitt þriðja ár í að vinna eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna en opnað var fyrir umsóknir í byrjun árs 2022. Innleiðing hefur gengið vel. Heildarfjöldi mála eru um 140 sem er um 15,5% barna í sveitarfélaginu.

Um 65% mála eru svokölluð 1. stigs mál sem eru vægustu málin. Um 34% eru 2. stigs mál og 1% 3. stigs mál. Stærsti hluti barnanna eru á yngsta stigi grunnskóla. Nokkur færsla er á málum milli stiga eða mál lokað. Vestmannaeyjabær er eitt af frumkvöðlasveitarfélögum varðandi innleiðingu á umræddum lögum.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.