Ísfélagið framleiðir Royalmjöl sem notað er í laxafóður
Ný­verið hófu Ísfé­lag Vest­manna­eyja, skoska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Loch Duart og alþjóðlega laxa­fóður­fyr­ir­tækið Ewos sam­starf um fram­leiðslu á hágæðafiski­mjöli. For­saga máls­ins er sú að Loch Duart, sem kaup­ir fóður í sitt lax­eldi frá Ewos, vildi fóður með háu hlut­falli af fiski­mjöli til að há­marka gæði og nær­ing­ar­inni­hald til síns lax­eld­is. Frá þessu segir á 200 mílur á mbl.is.
�?ar segir að hjá Ísfé­lag­inu er nú fram­leitt kónga­fæði, eða svo gott sem. Eitt af þeim skil­yrðum sem Loch Duart taldi mik­il­vægt var að í fóðrinu væri mjöl úr fiski sem áður hefði verið flokkaður og nýtt­ur til mann­eld­is, eins og til dæm­is hrat út loðnu­hrogna­vinnslu. Laxa­fóður­fyr­ir­tækið Ewos, sem sé leitaði þá til Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyj­um. Fé­lög­in tvö hafa átt í viðskipta­sam­bandi und­an­far­in ár og taldi Ewos Ísfé­lagið upp­fylla all­ar þær kröf­ur sem Loch Duart hafði sett í leit sinni að hágæðafóðri í sitt lax­eldi. Auk þess að fram­leiða loðnu­hrogn og nýta hratið sem til fell­ur til fiski­mjöls­fram­leiðslu er Ísfé­lagið með 20% loðnu­kvót­ans hér­lend­is.
Eft­ir að fyr­ir­svars­menn fé­lag­anna þriggja höfðu hand­salað heiðurs­manna­sam­komu­lag um sam­vinnu að þessu verk­efni var ákveðið að mjölið yrði nefnt Royalmjöl (e: Royal Fis­h­meal). Kom það til af þeim sök­um að í brúðkaupi Vil­hjálms Bretaprins og Kate Middlet­on vorið 2011 var lax frá Loch Duart á boðstól­um fyr­ir brúðkaups­gesti.
Fjölþjóðafyr­ir­tækið Carg­ill, sem á meðal ann­ars fóður­fram­leiðand­ann Ewos, veitti svo Ewos verðlaun­in Bus­iness of the Year, eða svo­kölluð BOY-verðlaun inn­an sam­steyp­unn­ar, fyr­ir að hafa komið þessu sam­starfi á. Voru verðlaun­in veitt á ráðstefnu helstu stjórn­enda Carg­ill og tengdra fé­laga í Minn­ea­pol­is ný­verið. Var það mat yf­ir­stjórn­ar Carg­ill-sam­steyp­unn­ar að sam­starfið og fram­kvæmd­in öll væri til fyr­ir­mynd­ar og var sér­stak­lega vísað til hlut­ar Ísfé­lags Vest­manna­eyja við af­hend­ing­una. Haft er eft­ir fram­kvæmda­stjóra Loch Duart, Al­b­an Dent­on, að með þessu �??hafi draum­ur Loch Duart um sjálf­bært laxa­fóður í hæsta mögu­lega gæðaflokki loks­ins ræst.
�??Mjölið úr Eyj­um orðið kónga­fæði�??
Páll Scheving, fram­leiðslu­stjóri ÍV, sagði í sam­tali við 200 míl­ur: �??�?að sem gleður okk­ur hjá Ísfé­lag­inu sér­stak­lega varðandi þetta til­tekna verk­efni er að vera kom­in nær hinum eig­in­legu neyt­end­um í þess­ari virðiskeðju og nær lax­eld­inu. �?ar er nú hreint ekki verra að fram­leiðsluaðil­inn skuli vera Loch Duart, sem fram­leiðir hágæðalax og ein­hvern sá besta í ver­öld­inni allri. �?eir telja okk­ur geta upp­fyllt all­ar þeirra ýtr­ustu gæðakröf­ur og við erum stolt af því að standa und­ir slík­um kröf­um þar sem þær eru rík­ast­ar. Menn hafa það á orði að núorðið er mjölið héðan úr verk­smiðjunni í Vest­manna­eyj­um orðið kónga­fæði,�?? seg­ir Páll Scheving að lok­um og hlær.
Nánar á 200 mílur

Nýjustu fréttir

Ágæt veiði hjá Eyjunum
Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.