Jafntefli gegn Stjörnunni - myndir
ÍBV og Stjarnan mættust í Pepsi-deild kvenna í kvöld og endaði leikurinn með 1:1 jafntefli. Stjarn­an fékk víta­spyrnu strax eftir rúman tíu mínútna leik en Adelai­de Gay í marki ÍBV gerði sér lítið fyri varði spyrnuna. Á 23. mín­útu leiksins var aftur dæmd vítaspyrna á ÍBV, skiljanlega við lítinn fögnuð stuðningsmanna Eyjakvenna. Adelai­de Gay kom þá eng­um vörnum við og staðan 0:1.
Stjarnan fór inn í hálfleikinn með forystuna en eft­ir um klukku­tíma leik jafnaði Adrienne Jor­d­an metin fyrir heimakonur eftir vel útfærða aukaspyrnu Sóleyjar Guðmundsdóttur. Skömmu fyrir leikslok átti Kristín Erna Sigurlásdóttir ágætis skot sem hafnaði í þverslánni og var það síðasta alvöru færi leiksins. Lokastaða 1:1 jafntefli eins og fyrr segir, niðurstaða sem bæði lið geta vel við unað.
Eftir leikinn er Stjarn­an með 7 stig en ÍBV 4 stig.
Hér má sjá svipmyndir frá leiknum.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.