Jól í skókassa - Síðasti skiladagur skókassa í dag
Í dag, föstudaginn 4. nóvember líkur verkefninu Jól í skókassa hér í Eyjum. Hægt er að skila skókössum í Landakirkju til 15:00 í dag en eftir það er fólki bent á að fara með kassana niður á Flytjanda við Friðarhöfn. Eftir það og fram til 12. nóvemver nk. er hægt að fara með kassa á Holtaveg 28 þar sem höfuðstöðvar KFUM og KFUK á Íslandi eru til húsa.
Verkefnið Jól í skókassa felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK hefur staðið að verkefninu á Íslandi frá árinu 2004. Á þeim tíma hafa safnast rúmlega 50.000 gjafir sem sendar hafa verið til �?kraínu og drei af KFUM þar í landi á munaðarleysingjaheimili, á barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í �?kraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.