Jólatónleikar kirkjukórsins á miðvikudagskvöld
Árlegir jólatónleikar Kirkjukór Landakirkju verða nk. miðvikudagskvöld, 14. desember og hefjast kl. 20:00. Dagskráin verður sneisafull af hátíðlegum og hrífandi jólalögum líkt og undanfarin ár en kórinn hefur verið við stífar æfingar fyrir þetta tilefni frá því snemma í haust. Tónleikarnir eru tvískiptir rétt eins og undanfarin ár en dagskráin hefst í sal safnaðarheimilis Landakirkju og líkur svo upp í Landakirkju. Einsöngvararnir Einar Clausen og Elísa Elíasdóttir eyjamær koma fram með kórnum sem er dyggilega stýrt af Kitty Kovács organista Landakirkju. Miðaverði hefur verið stillt í hóf en það er litlar kr. 2.500 fyrir þessa tónlistarveislu.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.