Karlar í skúrum - Fjölmenni við opnun
Fjölmenni var við opnunina.

Fjölmennt var þegar aðstaðan, Karlar í skúrum var opnuð formlega við  hátíðlega athöfn á Hraunbúðum í dag. Tilgangurinn er að auka lífsgæði karla í gegnum handverk, tómstundir og samveru. Handverk auðveldi körlum að tengjast og spjalla í glæsilegri aðstöðu í kjallara Hraunbúða, búin fullkomnum tækjabúnaði fyrir allt handverk.

Lionsklúbbur Vestmannaeyja hefur farið fyrir verkefninu og er fyrirmyndin m.a. sótt til Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Ingimar Georgsson, lionsmaður ávarpaði  gesti og lýsti verkefninu. Þakkaði hann öllum sem komu að verkinu og velvilja bæjarstjórnar sem strax stökk á vagninn og útvegaði húsnæðið.

Íris bæjarstjóri þakkaði Lionsklúbbnum fyrir framtakið og óskaði körlum á öllum aldri með aðstöðuna. Gestir frá Hafnarfirði og Mosfellsbæ mætu og kynntu starfsemina í sínum klúbbum.

Á eftir var boðið upp á veitingar og gafst gestum kostur á skoða aðstöðuna.

Myndir Óskar Pétur.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.