Keppast við að fá Írisi á lista?
Íris, sem hér er með Sigurði Inga Jóhannssyni, fjármála- og efnahagsráðherra segir hluta af starfi sínu að vera í góðu sambandi við forystumenn stjórnmálaflokkanna.

„Það er sagt að þú sért einn eftirsóttasti bitinn í pólitíkinni þessa dagana og að flokkarnir keppist við að bjóða þér sæti á lista. Ertu á leið í landsmálin?“ spurði stjórnandi Silfurs á RÚV Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum í þætti kvöldsins. Þar var Íris einn af fjórum gestum sem fóru yfir stöðuna í pólitíkinni í dag.

Spurningin kemur ekki á óvart því heyrst hefur að Írisi standi til boða sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hún var nokkuð afdráttarlaus í svari sínu án þess þó að slá neitt út af borðinu. „Ég er mjög ánægð í því starfi sem ég er í dag,“ sagði Íris. „Ég get sagt þér, að hluti af því er að vera í sambandi við ráðherra og formenn þingflokka. Ég er það og í ágætu samstarfi ásamt öðru sem snýr að hagsmunamálum fyrir Vestmannaeyjar,“ sagði Íris en þá greip stjórnandinn inn í og spurði hvort Viðreisn og Samfylking hefðu boðið henni sæti? Þessu svaraði Íris ekki með öðru en blikka stjórnandann og uppskar mikinn hlátur.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.