Kirkjugerði 50 ára
Samfélagið stóð heldur betur með Vestmannaeyingum í kjörfar eldgossins á Heimaey árið 1973
Kirkjugerdi 24 Tms IMG 6244
Kirkjugerði. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Leikskólinn Kirkjugerði er 50 ára í dag, 10. október. Á vef Vestmannaeyjabæjar ritar Íris Róbertsdóttir grein vegna tímamótana. Grein Írisar má lesa í heild sinni hér að neðan, en rétt er að geta þess að í tilefni afmælisins verður opið hús á Kirkjugerði í dag milli kl: 15.00 og 16.00.

Til hamingju með daginn

Við erum minnt á þann samtakamátt í dag þar sem Kirkjugerði okkar var upphaflega reist árið 1974 fyrir rausnarlega gjöf frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Þaðan er einnig nafnið runnið – Kirkjugerði.

Byggingin var aðeins 5 mánuði í smíðum og vígt 10. október 1974, það var ekkert drollað á þeim tíma þegar þurfti að byggja upp!

Sem betur fer var snemma þröngt um starfsemina, börnum fjölgaði en upphaflega voru aðeins 2 deildir í húsinu en eru orðnar 5 núna og með viðbótinni samtals 6 deildir og áætlanir um 7 deildinni.

Frá upphafi hefur metnaður og alúð einkennt starfsemina, hér er grunnurinn lagður og börnin sem koma hingað taka hér fyrstu skrefin sín bæði bókstaflega og í þekkingu á samfélaginu sínu. í síðasta mánuði var umfjöllun um þróunarverkefni á Íslandi sem heitir ferðalag um íslenskt skólakerfi. Það voru rúmlega 70 verkefni tilnefnd og að mati dómnefndar var þróunarverkefni Kirkjugerðis um floorbooks í topp 20. Sem undirstrikar gæði og metnað skólans.

Eitt af sérkennum Kirkjugerðis er nálægðin við Hraunbúðir og Bjargið dagdvölina og það er einstaklega ánægjulegt hversu vel stjórnendur og starfsfólk skólans hafa nýtt sér þá auðlind með reglulegum heimsóknum leikskólabarnanna.

Til hamingju með daginn starfsfólk og nemendur á Kirkjugerði og við Vestmannaeyingar allir með þennan frábæra skóla.

 

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Fleiri myndir frá Kirkjugerði má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.