Kolli lofar að taka 20 bolta
Karlalið ÍBV tekur á móti Akureyri á morgun, laugardag klukkan 13:00 í Eyjum. �?etta er í annað sinn á tæpri viku sem liðin spila í Eyjum en ÍBV hefur unnið báðar viðureignir liðanna í Olísdeildinni, fyrst 22:35 á Akureyri og svo 30:27 síðasta sunnudag. Strákarnir hafa fengið frábæran stuðning í síðustu tveimur leikjum og sjaldan verið jafn skemmtilegt að vera á handboltaleik eins og nú. Hvítu riddararnir setja skemmtilegan svip á umgjörðina, skemmta sér á leikjunum og draga aðra með sér í gleðina.
Kolbeinn Arnarson, markvörður ÍBV liðsins er mikill stuðbolti en hann sagði í samtali við Eyjafréttir að það sé ekkert verra að mæta Akureyri strax aftur. �??Bara rosa gott. Fyrri leikurinn ennþá ferskur í minni, hitt og þetta sem hægt er að bæta og það er fint að bæta það strax og klára þá.�??
Verður þessi leikur erfiðari en sá fyrri?
�??�?essi leikur gæti alveg dottið i það að vera strembinn, því jú bæði lið eru búin að skoða hvort annað og þessháttar.�??
�?ið hafið fengið góðan stuðning í síðustu tveimur leikjum. Skiptir þetta máli fyrir ykkur á vellinum?
�??Stuðningurinn hefur verið frábær undanfarið og finnst mér það frábært. �?g persónulega spila miklu betur þegar það allir eru geðsjúkir upp í stúku og held það sé með restina af liðinu. Umgjörðin hefur lika verið flott og hef ég heyrt að menn séu að semja lög um hina og þessu. �?að verður rosalega gaman að spila ef stemmingin verður svipuð og síðast. En eg myndi elska það ef það yrði allt truflað og þá skal ég lofa 20 boltum!�??

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.