Körfuboltadagur KKÍ í Vestmannaeyjum

Laugardaginn 23. október ætlar KKĺ, Körfuknattleikssamband Íslands, að vera með körfuboltadag í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og vera með æfingar og leiki og kynna körfuboltann fyrir krökkunum í Eyjum.

Námskeidið verður tvískipt en fyrri hlutinn er leikjanámskeið sem verður frá kl. 13:00-14:00 og svo loks körfuboltaæfing kl. 14:00-16:00.

Leikjanámskeid frá 13:00-14:00
Námskeiðið er fyrir krakka í 1.-4. bekk bædi stelpur og stráka en á þessu leikjanámskeiði verður körfuboltinn hafður í forgrunni í bland við fjölbreytta og skemmtilega leiki. Gleði og jákvæðni eru ein af einkunnarorðum okkar og markmiðið með leikjanámskeiðunum er að kynna körfuboltann fyrir krökkunum á svæðinu spila, fara í ýmsa skemmtilega leiki og hafa gaman!

Körfuboltaæfingar frá 14:00-16:00
Æfingin er fyrir alla krakka í 5.-10. bekk en á þessum æfingum verður lögð áhersla á að kynna körfubolta í gegnum einstaklingsmidaðar æfingar eins og sóknarhreyfingar, dripl, skot og sendingar sem miða að því að bæta tækni og audvitað verða spilaðir leikir í bland við fjölbreyttar æfingar og fjör.

Sævaldur Bjarnason þjálfari 18 ára landsliðs kvenna og margreyndur þjálfari bæði í yngri flokkum og meistaraflokki mun stjórna deginum og vonumst við til þess að allir krakkar á svæðinu kíki í heimsókn og taki þátt í deginum sem er öllum að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá sig heldur bara mæta!

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.