Kútmagaveisla á Kaffi Kró fyrir gesti og gangandi
Kútmaga- og fiskiveisla verður í boði á Kaffi Kró fyrir gesti og gangandi í dag, föstudag 21. feb. kl. 17-19. Um áratuga skeið hefur ekki verið boðið upp á almennar kútmagaveislur með fiski, hrognum og lifur en svo var löngum áður fyrr.
Kútmagar, mjölmagar og lifrarmagar og fyllt hrogn eru mikið lostæti og í fiskinum eru nokkrar tegundir flakaðar á miðunum í vikunni.
Kútmagaveislan er liður í því að vekja upp gamlar matarhefðir sem margir sakna, en það er mikil vinna að gera kútmagana klára fyrir eldun.
Árni Johnsen stendur fyrir veislunni, og Einsi kaldi sér um matseldina en hún er m.a. haldin til þess að afla fjár í kostnað við upptökur á tónverkum Árna erlendis. Einhver smærri fyrirtæki ætla að mæta með sinn mannskap í kútmagaveisluna, virkja stemmninguna og taka þetta út sem ekki er daglegt �??brauð�??.
Veislan kostar 2500 kr. á mann.
Árni sagðist ekki síst vilja hvetja Eyjamenn til þess að bjóða eldra fólki í kútmagaveisluna, það myndi lyfta því upp og gera því gott og svo væri reynslan sú, þar sem kútmagaveislur eru viðhafðar, að unga fólkið sýnir þessum mat vaxandi áhuga.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.