Lagning ljósleiðara í þéttbýli Vestmannaeyja
13. júlí, 2022

Undanfarna daga hafa undarleg tæki sést að störfum í Dverghamrinum þegar tvær götufræsivélar hófu að fræsa raufar í malbikið fyrir ljósleiðaralögn. Hér eru á ferð starfsmenn Línuborunar sem eru að byrja að leggja blástursrör fyrir nýtt fyrirtæki í eigu Vestmannaeyjabæjar, Eygló ehf.

Eygló ehf. mun halda utan um lagningu ljósleiðara í þéttbýli Vestmannaeyjabæjar. Félagið er alfarið í eigu Vestmannaeyjabæjar og markmiðið með stofnun þess er að tryggja íbúum Vestmannaeyja jafn gott aðgengi að Internetinu og íbúar annarra sveitarfélaga njóta.

Umferð meðan á framkvæmdum stendur

Starfsmenn Línuborunar notast við götufræsara sem fræsir 10-15cm rauf í götur og jarðveg og leggja síðan blástursrör þar ofan í. Með þessari aðferð er hægt að leggja ljósleiðara án þess að loka götum. Bílar geta auðveldlega keyrt yfir raufina. Fólk á hjólum þarf hins vegar að gæta varúðar í kringum framkvæmdirnar þar sem framhjólin eiga það til að snúast þegar þau hitta á raufina og hjólreiðamaður gæti hæglega skollið fram fyrir sig. Þetta á við um öll hjól, þ.m.t. reiðhjól, hlaupahjól og vélhjól. Einnig er hætta á að rigning geti skolað jarvegi úr uppfylltum raufum og við það myndast brún sem getur verið óþægilegt að hjóla á. Línuborun mun leggja alla áherslu á að framkvæmdin muni hafa eins lítil áhrif og möguleiki er á. Raufum verður lokað svo fljótt sem auðið er svo allt jarðrask verði íbúum til minnstu trafala.

Tveir áfangar af sex teknir í sumar

Í sumar og haust er stefnt á að taka fyrstu tvo áfangana af sex. Fyrst verða blástursrör fræst ofan í jarðveginn og heimtaugar lagðar í öll hús. Strengirnir verða lagði frá húsum að tengistöðinni, sem í þessum áfanga er í Hamarsskóli. Þegar búið er að leggja blástursrörin verður hafist handa við að blása ljósleiðaranum inn í hús og tengja við dreifikerfið. Nú þegar er búið að leggja stofnlagnir frá Hamarsskóla. Þegar búið verður að blása ljósleiðaranum í öll hús í þessum áfanga geta gagnaveitur boðið þjónustu sína við bæjarbúa sem fengið hafa tengingu.

Þjónustuveitur í gegnum ljósleiðara

Eygló ehf. leggur áherslu á að allar gagnaveitur sem áhuga hafa, geti fengið aðgang að ljósleiðarakerfi fyrirtækisins. Þannig verði stuðlað að heilbrigðri samkeppni bæjarbúum í hag, ætti að tryggja betri þjónustu og betra verð. Eygló ehf. ætlar ekki að reka virðisaukandi þjónustu með ljósleiðarakerfi bæjarins, eins og t.d. Internetþjónustu. Það er ekki hlutverk fyrirtækisins. Eygló mun einungis selja ljós á milli notenda og gagnaveitna. Fyrir það greiða notendur svokallað línugjald. Með þessu ættu allar þjónustuveitur að geta boðið Vestmannaeyingum tengingar, hafi þjónustuveiturnar áhuga á því. Þegar lagningu ljósleiðarans líkur í hverjum áfanga fyrir sig mun Eygló senda tilkynningu til íbúa og gagnaveitna um að þjónustan sé opin og þjónustuveitur geta hafið markaðssetningu á svæðinu. Á þeim tímapunkti geta íbúar haft samband við sína þjónustuveitu og óskað eftir því að fá að kaupa internet yfir ljósleiðarann í stað ljósnet eða ADSL eins og er í dag. Einnig geta þjónustuveitur sent inn tilboð um þá þjónustu sem þeir hafa upp á að bjóða

Almenn sátt og skilningur íbúa meðan á framkvæmdum stendur

Almenn sátt virðist ríkja um verkefnið og framkvæmdirnar það sem af er. Íbúar á svæðum þar sem framkvæmdir eru hafnar taka verkefninu opnum örmum og þykir framtakið vera orðið löngu tímabært. Það er von allra sem koma að þessu verkefni að íbúar sýni framkvæmdaaðilum og raski þar af leiðandi skilning og að verkefnið allt muni vinnast í sátt og samlyndi við íbúa Vestmannaeyjabæjar. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af framkvæmdum sem hófust fyrir nokkrum dögum síðan.

Af: vestmannaeyjar.is

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.