Landgangurinn líklega ónýtur eftir óhapp

Talsvert tjón varð á landgöngubrú Herjólfs þegar flutningabíl var ekið á hana þegar verið var að lesta í fyrstu ferð í morgun, að því er fram kemur í frétt á mbl.is sem greindi fyrst frá.

Þar er haft eftir Herði Orra Grettissyni, framkvæmdastjóra Herjólfs, sem telur tjónið verulegt og líklegt að landgangurinn sé ónýtur.

„Við þurf­um ein­hvern veg­inn að leysa þetta í dag og nota bíla­dekkið til að koma fólk­inu heim“ seg­ir Hörður en fjöldi þjóðhátíðargesta eiga pantað með ferjunni í dag.

Verið er að leggja mat á hvort hægt sé að gera við skemmdirnar eða hvort nýjan landgang þurfi til. Ekki hafi verið um neinar tafir í morgun og gengið hefur vel að flytja fólk á milli lands og eyja.

Ljósmynd: Siggi Vídó.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.