Leita eftir verðtilboðum í flug þrjár ferðir í viku.

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í vikunni. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, greindi frá áherslu innviðaráðherra, um að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu, skv. skilgreiningu ráðuneytisins, á flugleiðinni Reykjavík Vestmannaeyjar á meðan að markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum yfir hörðustu vetrarmánuðina þegar mestar líkur eru á því að veður hamli siglingum í Landeyjahöfn.

Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að leita eftir verðtilboðum í flug með farþega og vörur til og frá Vestmannaeyjum. Um verður að ræða tímabundinn samning frá 16. desember 2022 til 31. mars 2023, með möguleika á framlengingu, og að farnar verði þrjár ferðir í viku. Gert er ráð fyrir að tvær ferðir af þremur verði á sama degi.

Samkvæmt upplýsingum frá innviðaráðuneytinu er verið að fara yfir þau verðtilboð sem bárust í flugleiðina og mun það skýrast næstu daga.

Vestmannaeyjabær hefur átt í samtali við ráðuneytið um flugið, með áherslu á að hefja ríkisstyrkt áætlunarflug milli lands og Eyja til framtíðar.

Bæjarráð bindur í niðurstöðu sinni vonir við að það gangi eftir að tryggja lágmarksflug til og frá Vestmannaeyjum í vetur.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.