Lífeyrisþegi krefst miskabóta frá Vestmannaeyjabæ vegna fordóma

Lífeyrisþegi á áttræðisaldri hefur sent Vestmannaeyjabæ kröfubréf þar sem farið er fram á afsökunarbeiðni og greiðslu 3 milljóna króna miskabóta. Krafan er vegna ítekraðrar lítillækkandi og meiðandi framkomu starfsfólks Vestmannaeyjabæjar í garð viðkomandi og mismunun á grundvelli húðlitar og trúarbragða. Verði ekki orðið við kröfunni má bærinn búast við því að höfðað verði mál. Greint er frá þessu í frétt á vefnum dv.is.

Í bréfinu, sem DV hefur undir höndum, kemur fram að lífeyrisþeginn sé upprunalega frá Íran og sé múhameðstrúar. Hann er búsettur í Vestmannaeyjum og er með sögu um alvarlegan hjartasjúkdóm.

Í bréfinu eru raktar þrjár ástæður fyrir kröfunni en fram kemur að um sé að ræða ítrekuð og endurtekin atvik sem geti ekki, sé horft á hlutina í samhengi, verið tilviljun eða mistök af hálfu starfsmanna Vestmannaeyjarbæjar.

Svikinn við úthlutanir, svínakjöt og hreppaflutningar
Í fyrsta lagi hafi verið ítrekað gengið framhjá lífeyrisþeginum í úthlutunum leiguíbúða aldraða þrátt fyrir að aldur og sjúkrasaga ætti að hafa nú þegar tryggt slíka íbúð.

Í öðru lagi hafi starfsfólk á vegum Vestmannaeyjarbæjar ítrekað sent viðkomandi mat sem inniheldur svínakjöt þrátt fyrir fjölmargar ábendingar þess efnis að viðkomandi borði ekki slíkt vegna trúar sinnar.

Í þriðja lagi hafi starfsfólk sveitarfélagsins í tvígang tekið upp á því að flytja lífeyrisþegann hreppaflutningum til Reykjavíkur án nokkurrar sýnilegrar ástæðu eða lagaheimildar og í því felist ólögmæt meingerð sem sé skaðabótaskyld.

Bréfið er dagsett í gær, mánudaginn 23. október, og er það hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem er lögmaður lífeyrisþegans. Hefur Vestmannaeyjabær vikufrest til þess að bregðast við kröfunni en verði ekki orðið við henni áskilur Vilhjálmur sér rétt til þess að höfða mál fyrir hönd lífeyrisþegans án frekari viðvörunar. Eftir því sem fram kemur í frétt DV.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.