Við setningu Bryggjuhátíðar á Stokkseyri þann 11. júlí s.l. opnaði Ásta Stefánsdóttir, starfandi bæjarstjóri (bæjarritari) í Árborg ljósmyndasýningu á neðri hæð Bryggjusviðsins á Stokkseyrarbryggju.
Þar voru 70 ljósmyndir Jóns Sigurgrímssonar f. 7. maí 1922 d. 29. júní 2008 frá Holti í Stokkseyrarhreppi hinum forna en hann var bóndi þar 1954 til 1995. Myndirnar eru af mannlífi í hreppnum á fyrri tíð og var sýningin hluti af afmælishaldi Búnaðarfélags Stokkseyrarhrepps sem fagnar 120 ára afmæli í ár.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.