Lögregla minnir á reglur varðandi skotveiðar
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins. Síðdegis þann 24. febrúar sl. handtók lögregla mann sem grunaður var um akstur undir áhrifum áfengis og akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Fékk ökumaðurinn að gista fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Honum var sleppt eftir að víman rann af honum og hann hafði gefið skýrslu hjá lögreglu.
Fimm aðrar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna og er í öllum tilvikum um að ræða ólöglega lagningu ökutækja. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku en í báðum tilvikum var um minnháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.
Að gefnu tilefni vill lögreglan koma eftirfarandi á framfæri en lögreglu hafa borist ábendingar um að veiðimenn séu að skjóta svartfugl nálægt fuglabjörgum hér í Vestmannaeyjum og vill lögreglan minna veiðimenn á að ekki er heimilt að skjóta nær fuglabjörgum en 500 metra.
�?r lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64 frá 1994.
17. gr. Fuglar.
Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, aflétt friðun eftirtalinna fuglategunda innan þeirra tímamarka er hér segir, sbr. 7. gr.:
1. Allt árið: svartbakur, sílamáfur, silfurmáfur, hrafn.
2. Frá 20. ágúst til 31. mars: grágæs, heiðagæs.
3. Frá 1. september til 31. mars: fýll, dílaskarfur, toppskarfur, súla, blesgæs, helsingi, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávella, toppönd, hvítmáfur, hettumáfur, rita, skúmur, kjói. �?tíð er heimilt að skjóta kjóa nærri æðarvarpi.
4. Frá 1. september til 10. maí: álka, langvía, stuttnefja, teista, lundi.
5. Frá 15. október til 22. desember: rjúpa.
Heimilt er að takmarka veiðar við ákveðna daga innan þeirra tímamarka sem fram koma í 1. mgr. og ákveðinn tíma sólarhrings.
Nú hefur ráðherra ákveðið að aflétta friðun skv. 1. mgr. og getur hann þá að ósk sveitarstjórnar ákveðið að friðun gildi áfram í tiltekinn tíma á ákveðnum svæðum þar sem umferð veiðimanna er talin óæskileg.
�?heimilt er að þeyta flautur, fljúga flugvélum eða vera með annan hávaða að óþörfu í grennd við fuglabjörg. Enn fremur er óheimilt að hleypa af skoti á landi nær fuglabjörgum en 200 m og á sjó nær en 500 m. Aldrei má skjóta fugl í fuglabjörgum.
�?heimilt er að veiða fugla í sárum
Veiðitímabil :
Frá 1. september til 15. mars: Fýll, dílaskarfur, toppskarfur, blesgæs, helsingi, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávella, toppönd, hvítmáfur, hettumáfur, rita.
Frá 1. september til 10. maí: Álka, langvía, stuttnefja, teista, lundi.

Nýjustu fréttir

Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.