Lokasprettur í forsölu Þjóðhátíðarmiða fyrir félagsmenn
Þjóðhátíðin er dagana 31. júlí til 3. ágúst.

Forsala á Þjóðhátíðarmiðum fyrir félagsmenn ÍBV stendur nú yfir og lýkur henni á miðnætti á morgun, föstudaginn 3. júlí. Félagsmenn eru hvattir til að tryggja sér miða á dalurinn.is.

Eldri borgarar á aldrinum 67–70 ára geta keypt Þjóðhátíðarmiða á sérkjörum fyrir 15.990 krónur. Eldri borgarar sem jafnframt eru félagsmenn ÍBV geta einnig nýtt sér félagsmannaafsláttinn og keypt allt að þrjá miða til viðbótar á sömu kjörum og aðrir félagsmenn, auk miðans sem þeir kaupa á sérkjörum eldri borgara.

Þeir sem þurfa aðstoð við miðakaup geta haft samband við framkvæmdastjóra ÍBV, Ellert Scheving, með tölvupósti á ellert@ibv.is eða í síma 867-0262. Einnig er hægt að koma við í Týsheimilinu, þar sem tekið er á móti þeim sem óska eftir aðstoð.

Miðasala er eins og áður segir á dalurinn.is.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.