Magdalena semur við ÍBV
Magdalena Jónasdóttir. Ljósmynd/ibvsport.is

Knattspyrnukonan unga Magdalena Jónasdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild ÍBV en hún er 17 ára á árinu. Magdalena hefur leikið upp alla yngri flokka ÍBV og hefur leikið þar fjölmargar stöður, nánast allar á vellinum. Nú leikur hún aðallega sem vinstri bakvörður en hún hefur gott vald á spyrnutækni með báðum fótum sem er gríðarlegur kostur, segir í frétt á heimasíðu ÍBV.

Magdalena spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki í Lengjubikarnum í fyrra en þá kom hún einnig við sögu í síðasta deildarleiknum á því tímabili. Á þessu ári hefur Magdalena leikið í 12 leikjum, þar af 7 í deild og Mjólkurbikar. Hún leikur einnig lykilhlutverk í sameiginlegu liði ÍBV og Grindavík/Njarðvík í U20 ára liði kvenna.

Knattspyrnuráð hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Magdalenu en hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið, segir enn fremur í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.