„Þrátt fyrir að við unnum ekki leikinn þá er þetta bara geðveik tilfinning,” segir Oliver Heiðarsson, leikmaður ÍBV eftir 1:1 jaftnefli gegn Leikni í lokaumferð Lengjudeildarinnar við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Oliver endaði sem markakóngur Lengjudeildarinnar með 14 mörk.
„Bara mjög sáttur. Ég ætlaði mér að verða markahæstur og hefði getað skorað aðeins fleiri, en fjórtán dugðu í þetta skipti. MIklu meiri stöðugleiki hjá mér þetta ár heldur en í fyrra. Það eru leikir sem ég er ósáttur með, en það eiga allir slæma leiki,”
Oliver var spurður út í hvort hann verði áfram hjá ÍBV í næsta ári.
„Eins og er þá er ég í Eyjum, ég er náttúrulega samningsbundinn. Ég ætla mér ekkert að hugsa um þetta núna. Ég ætla bara að taka smá frí en þetta er búið að vera svolítið langt tímabil. Mig langar að vera í Eyjum og mér finnst ógeðslega gaman að vera vera þar.”
Nánar á fótbolti.net.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.