MATEY Seafood Festival snýr aftur
Verður haldin 22.-23.maí 2026
Matey
Samvinna er hjartað í MATEY. Ljósmynd/Karl Petersson

Heimsklassa íslenskir gestakokkar verða á Einsa kalda, GOTT og NÆS veitingastað. Hátíðin sem er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, Visit Vestmannaeyjar, Ísfélags., Vinnslustöðvarinnar hf, Laxey og Fab Lab Vestmannaeyjar verður haldin dagana 22.-23.maí næstkomandi.

Vestmannaeyjar hafa fest sig í sessi sem einn áhugaverðasti mataráfangastaður landsins og nú snýr MATEY aftur í fjórða sinn. Við bjóðum þér í einstaka matarupplifun þar sem ferskasta hráefni landsins mætir skapandi matreiðslu í hæsta gæðaflokki.

Gestakokkarnir taka yfir veitingastaðina Einsi kalda, GOTT og NÆS, þar sem þeir vinna með heimafólki að því að skapa ógleymanlega margrétta upplifun beint frá hafi á disk. Samvinna er hjartað í MATEY. Veitingastaðir, fiskframleiðendur og ferðaþjónusta sameina krafta sína til að sýna það besta sem Eyjarnar hafa upp á að bjóða.

Nýjungar

Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á lax frá landeldinu Laxey. Tanginn og Kráin bjóða upp á sérrétti í tilefni hátíðarinnar og Brothers Brewery kynnir sérlagaðan MATEY-bjór.

MATEY er meira en matur. Þetta er helgi þar sem stórbrotin náttúra, lifandi samfélag og sjávarréttir í heimsklassa skapa ógleymanlega upplifun. Tryggðu þér borð í tæka tíð.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.