Þann 2.-16. júní næstkomandi stefna þau Signý Gunnarsdóttir, Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, Alma María Rögnvaldsdóttir og Guðmundur Guðnason á að hlaupa hringinn í kringum Ísland til styrktar krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Í janúar 2010 greindist þriggja ára sonur Sveins og Signýjar með hvítblæði og hefur hann gengið í gegnum strembna lyfjameðferð. Eftir margra mánaða raunir er hann kominn á beinu brautina og er nú í töflumeðferð þar til haustið 2012. Hann er frísklegur í dag og varla hægt að merkja á honum að hann hafi gengið í gegnum gríðarlega þrautargöngu.