Mesta ógn frá því í gosinu 1973? Ráðherra ræður engu

Það hefur ýmislegt dunið á Vestmannaeyingum síðasta árið. Byrjaði með bilun rafstrengs í byrjun síðasta árs. Í ljós kom að Herjólfur getur bilað og Landeyjahöfn er langt frá að skila því sem ætlað var. Ekki var útlitið bjart þegar vatnsleiðslan varð fyrir hnjaski í lok ársins 2023. Flestum hefði þótt nóg komið en nú bendir allt til þess að engin loðna verði veidd á vertíðinni með milljarða tapi fyrir Eyjarnar.

Einhvers staðar segir; allt er þá þrennt er en fullreynt í fjórða sem á vel við dæmin sem nefnd eru að ofan. En lengi getur vont versnað. Á þorra berst kröfugerð frá fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisins um sölsa undir ríkið stóran hluta af Heimaey og allar eyjar og sker við Vestmannaeyjar. Verður að líta á þetta sem mestu ógn við tilverurétt Vestmannaeyjabæjar og allra sem hér búa síðan í gosinu 1973.

Ráðherra ræður engu

Munu tilmæli ráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur til óbyggðanefndar um að endurskoða afstöðu sína breyta einhverju þar um er heldur ólíklegt.

Þetta kemur fram í grein í nýjasta blaði Eyjafrétta þar sem leitt er líkum að því að tilmæli ráðherra gætu kannski lengt frestinn til að grípa til varna. Nú er ljóst að svo verður ekki  því óbyggðanefnd fellst ekki á tilmæli ráðherra.

Mynd: Heimaklettur og Bjarnarey eru í sigti óbyggðanefndar sem vill sölsa Vestmannaeyjar undir ríkið.

Nýjustu fréttir

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón 
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.