Serbinn Milan Tomic hefur framlengt samningi sínum við knattspyrnudeild ÍBV. Félagið greindi frá samfélagsmiðlum sínum.
Milan er 26 ára miðjumaður sem hefur leikið með ÍBV síðan 2024. Hann hefur leikið 47 leiki með ÍBV í Bestu deild karla og skorað í þeim eitt mark.
Í tilkynningu ÍBV segir að Milan sé algjör stríðsmaður inni á vellinum. Hann komi með ótrúlega orku, baráttu og karakter í hvert einasta verkefni og gefist aldrei upp.
„En það sem gerir Milan sérstaklega mikilvægan fyrir okkur er ekki bara það sem hann gerir inni á vellinum. Hann er topp karakter utan vallar, alltaf boðinn og búinn að leggja sitt af mörkum og stendur svo sannarlega fyrir þau gildi sem ÍBV vill standa fyrir.“
ÍBV segist vera stolt og þakklátt að hafa Milan áfram með sér og hlakki til að sjá hann berjast fyrir félagið á komandi árum.