Minningarathöfn um Pelagus-slysið
Mynd: Sig­ur­geir Jónas­son

Á sunnudaginn, 12. september, verður efnt til minningarathafnar í Vestmannaeyjum um Pelagus-slysið, sbr. meðfylgjandi boðskort.

Aðfaranótt 21. janúar 1982 strandaði togarinn Pelagus við Prestabót í mjög slæmu veðri. Við afar erfiðar aðstæður tókst að bjarga sex skipverjum í land en tveir fórust. Undir lok björgunaraðgerða gerðist síðan sá hörmulegi atburður að tveir björgunarmenn fórust, þeir Kristján Víkingsson, læknir, og Hannes Kristinn Óskarsson sveitaforingi Hjálpasveitar Skáta Vestmannaeyjum.

Viðstaddur athöfnina á sunnudaginn verður Bart Gulpen, sem er einn eftirlifandi þeirra belgísku skipbrotsmanna sem bjargað var. Hann var einungis 17 ára skipverji á Pelagus þegar hann strandaði.

Nýjustu fréttir

Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.