Mjúkir brúnir tónar og dempað hár í vetur
Ásta Hrönn Guðmannsdóttir.

Ásta Hrönn Guðmannsdóttir, ein eigenda hárgreiðslustofunnar Sjampó, ræddi við Eyjafréttir um hártískuna í haust/vetur og gaf jafnframt góð ráð um umhirðu hársins í kuldanum. Hún deildi með okkur hvaða litir og stílar njóta vinsælda þessa dagana og hvað skiptir mestu máli til að halda hárinu heilbrigðu yfir vetrarmánuðina. 

Þegar spurt er hvað sé vinsælast þegar kemur að hári nú í haust segir Ásta áhersluna vera mjúkir brúnir tónar, ljóst dempað hár, skuggi í rótina ásamt koparlitum sem koma alltaf sterkir inn á haustin.     

Hún segir að helstu mistök sem fólk geri þegar kemur að hárumhirðu sé að hugsa ekki nógu vel um hárið heima eftir litun. ,,Við mælum alltaf með að nota hitavörn, en því miður eru enn þá of margir sem nota ekki hitavörn fyrir sléttun og blástur. Einnig bendum við fólki á að við mælum ekki með að fara að sofa með blautt hár. Fyrir þá sem eru með hársvarðar vandamál þá er einnig geggjað ráð að blása rótina,“ segir Ásta Hrönn. 

Aðspurð hvað sé í persónulegu uppáhaldi hjá Ástu þegar kemur að hári segir Ásta það vera að strípa hár. „Ég elska að vinna vel heppnað ljóst hár, en mér þykir mjög gaman að leika mér með tónera og skol.“ 

Ásta segir mikilvægt þegar fer að kólna úti að passa upp að fara ekki út með blautt hár, muna að næra hárið vel og nota góða djúpnæringu. Hún segir einnig gott að nota næringarsprey ef hárið verði mikið rafmagnað úti í kuldanum. 

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.