Næsta skref að tryggja að rekstur Herjólfs verði á forræði heimamanna
�??Auðvitað er þetta ánægjulegt og rennir enn styrkari stoðum undir þjóðhátíðina okkar. �?etta mál er hinsvegar enn stærra í mínum huga. Fyrir það fyrsta þá má það ekki verða einhver regla að við náum ekki árangri í samgöngumálum nema með blóðugri baráttu við kerfið,” segir Elliði Vignisson um ákvörðun Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að fella úr gildi þá ákvörðun Samgöngustofu að veita ekki undanþágu fyrir siglingar ferjunnar Akraness á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar yfir �?jóðhátíð.
“�?etta á að vera sameiginlegt verkefni okkar allra en ekki einkamál Eyjamanna. Í öðrulagi þá finnst mér þetta vera áminning fyrir eftirlitskerfið á Íslandi. Hlutverk þeirra er mikilvægt en þegar svona er gengið fram þá er hætt við tiltrú fólks á eftirlitinu minnki. �?að er vont að þurfa að stóla á eftirlit með eftirlitinu.
Nú þegar þessi niðurstaða liggur fyrir með þessum hætti er mikilvægt fyrir okkur að nota byrinn og sækja á ný. Næsta stóra skref okkar er að tryggja að rekstur Herjólfs verði á forræði okkar heimamanna. Við tökum okkar hlé frá baráttunni til að gleðjast á �?jóðhátíðinni en svo hefst baráttan fyrir bættum samgöngum á ný.�??

Nýjustu fréttir

Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.