Menntamálaráðuneytið hefur gefið út námskrá í íslensku fyrir útlendinga. Námskráin er ætluð fullorðnum einstaklingum af erlendum uppruna sem setjast að á Íslandi og þarfnast kennslu í grunnatriðum tungunnar. Náminu er ætlað að gera nemendur í stakk búna til þess að eiga samskipti við vinnufélaga og stjórnendur fyrirtækja, njóta góðs af þeirri samfélagsþjónustu sem í boði er og taka virkan þátt í íslensku samfélagi.
Menntamálaráðuneytið beinir því til fræðsluaðila sem bjóða upp á grunnnám í íslensku fyrir útlendinga að þeir hafi námskrána til hliðsjónar við íslenskukennsluna svo að samræmis sé gætt milli einstakra námskeiðshaldara.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst