Flugfélagið Ernir fær til landssins um miðjan dag á morgun, föstudag, nýja flugvél. Um er að ræða Jetstream 32, 19 farþega skrúfuþotu, en fyrir á félagið þrjár slíkar vélar ásamt minni flugvélum. Nýja flugvélin er keypt frá Red Star í Tyrklandi og mun áhöfn frá Flugfélaginu Erni fljúga vélinni til Reykjavíkur. Áætlað er að vélin lendi í Reykjavík um miðjan dag föstudaginn 5.nóvember, en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir að svo stöddu.
�?essi viðbót við flugvélaflota félagsins er kærkomin því mikil aukning hefur átt sér stað í farþegaflutningum í áætlunarfluginu og hefur leiguflugum einnig farið fjölgandi. Til að mynda hefur aukning á flugferðum til Húsavíkur, vegna stóriðjuframkvæmda og ferðamannastraums, aukist um 40% milli ára og til Vestmannaeyja um 30%. Áætla má að enn fleiri ferðum til þessara áfangastaða verði bætt við á nýju ári til að anna þeirri eftirspurn sem er að myndast. Á aðra áfangastaði hefur farþegum einnig fjölgað töluvert og er útlitið mjög gott bæði hvað innlenda og erlenda farþega varðar.
Kaup á nýrri flugvél er því ekki hvað síst vegna mikils uppgangs á flugleiðum félagsins en Flugfélagið Ernir flýgur til fimm áfangastaða innanlands, Húsavíkur, Vestmannaeyja, Hafnar í Hornafirði, Bíldudals og Gjögurs. Einnig sinnir félagið ýmsum leiguverkefnum bæði innanlands sem utan ásamt því að annast sjúkraflug milli landa og hafa þau verkefni verið að aukast jafnt og þétt.