Hvetja landsmenn til að njóta þess hlutverks að vera gestgjafar
15. júlí, 2023

Í fréttatilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar kemur fram að verkefninu Góðir gestgjafar var hleypt af stokkunum á veitingastaðnum Önnu Jónu í Tryggvagötu í gær, föstudaginn 14. júlí. Þar opnuðu þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri vefsíðu verkefnisins og birtu sín póstkort á samfélagsmiðlum.

Verkefnið er hvatning til landsmanna um að njóta þess mikilvæga hlutverks að vera gestgjafar og þeirra margvíslegu gæða sem því fylgja. Gestrisni þjóðarinnar er stór þáttur í góðri upplifun ferðamanna á Íslandi og saman erum við hluti af verðmætustu stundum fólks á ferðalagi. Við tökum vel á móti gestum sem sækja okkur heim og njótum á ýmsan hátt verðmæta sem þeir skilja eftir hér á landi. Í stað þess að flytja út fisk eða aðrar hefðbundnar vörur þá flytur ferðaþjónustan út gestrisni þjóðarinnar, sem svo skilar sér margfalt í afar fjölbreyttum ávinningi af góðum gestum okkar.

Við getum þakkað blómlegri ferðamennsku fyrir að við njótum nú fjölbreyttari þjónustu og atvinnutækifæra en áður, ásamt framúrskarandi gestrisni um land allt sem hefur alla tíð verið eitt af aðalsmerkjum Íslendinga. Heimsóknir okkar áhugasömu gesta hafa þannig gert samfélagið fjölbreyttara og skemmtilegra.

Það eru Samtök ferðaþjónustunnar, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Ferðamálastofa, Íslenski ferðaklasinn og áfangastaðastofur landshlutanna sem standa að baki verkefninu.

Á vefnum www.gestgjafar.is býðst fólki og fyrirtækjum að taka þátt í gestgjafaheiti og búa til póstkort til að deila á samfélagsmiðlum með mynd og skilaboðum frá eigin hjarta um jákvæð áhrif ferðaþjónustu á þau sjálf, nærsamfélögin eða samfélagið í heild.

Góðir gestgjafar skapa gæði

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra:

„Íslendingar eru góðir gestgjafar og Ísland eftirsóknarvert heim að sækja. Það sýna meðal annars kannanir á upplifun erlendra ferðamanna, en meðmælaskor Íslands sem áfangastaðar er með því hæsta sem um getur. Það er sterk vísbending um þá upplifun og gæði sem áfangastaðurinn stendur fyrir. Við þekkjum það öll á eigin skinni að gott viðmót og þjónustulund skiptir máli hvert sem maður fer. Verkefnið „Góðir gestgjafar“ undirstrikar það á jákvæðan hátt og minnir um leið á þau margvíslegu gæði sem fylgja því að taka á móti þessum góðu gestum. Ferðaþjónustan er máttarstólpi í þjóðarbúinu, stærsti gjaldeyrisskapandi atvinnuvegurinn og skilaði okkur um 390 milljörðum króna í útgjöldum erlendra ferðamanna á síðasta ári. Það gefur auga leið að fyrir lítið opið hagkerfi skiptir þetta miklu máli. Það er því nauðsynlegt að halda áfram að treysta umgjörð ferðaþjónustunnar til framtíðar með sjálfbærni að leiðarljósi.“

Ferðaþjónustan skapar blómlegt líf um land allt

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar:

„Það hefur verið frábært að sjá allt það ótrúlega líf sem hefur kviknað um allt land út frá ferðaþjónustunni síðustu ár, til dæmis miklu fjölbreyttari atvinnutækifæri, meiri grundvöllur fyrir rekstri lítilla fjölskyldufyrirtækja, fjöldi frábærra veitingastaða og alls konar þjónusta hefur orðið til sem við heimafólkið nýtum okkur líka. Við upplifum landið okkar líka á annan hátt þegar við sjáum hversu mögnuð áhrif það hefur á gestina, sem hafa kosið að verja dýrmætasta tíma sínum hér hjá okkur, frítímanum.Við viljum að þessi jákvæða upplifun bæði gestanna og okkar gestgjafanna verði enn betri í framtíðinni og erum að vinna með stjórnvöldum að aðgerðaáætlun um sjálfbæra þróun ferðaþjónustu til að tryggja það.“

Fjölbreyttari og skemmtilegri upplifun fyrir okkur öll

Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri: 

„Þegar við lítum á þessi fjölbreyttu lífsgæði sem virðast næstum hversdagsleg í dag þá kemur á óvart hvað er í raun stutt síðan þau vantaði. Það er orðinn grundvöllur fyrir rekstri verslana allt árið í litlum samfélögum, hér er fjöldi baðlóna á heimsmælikvarða, alls konar þjónusta hefur orðið til sem áður stóð ekki undir sér, kaffihús og veitingastaðir starfa í næstum hverjum bæ á landinu og víða í sveitum, stærri markaður er fyrir vörur bænda og smáframleiðenda og betri grundvöllur fyrir að starfa við íslenska hönnun svo eitthvað sé nefnt. Svo má ekki gleyma því að við Íslendingar erum líka ferðamenn í eigin landi, og öll þessi uppbygging hefur gert þá upplifun fjölbreyttari og skemmtilegri fyrir okkur öll.“

Við erum öll gestgjafar

Gestrisni er svo innmúruð í íslenska menningu að Hávamál hefjast á nærri þúsund ára ráðleggingum um hvað beri að gera þegar gest ber að garði, en þar eru ekki síður ráðleggingar til gesta um hvernig skynsamlegt sé að haga heimsókninni. Öllum gestagangi fylgja auðvitað allskonar áskoranir sem takast þarf á við af ábyrgð svo að upplifun bæði gestanna og okkar gestgjafanna verði að minnsta kosti jafn góð – og helst miklu betri – en í dag. 

Við erum öll gestgjafar í okkar einstaka landi. Verið velkomin á www.gestgjafar.is

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst