Nýr yfirlögregluþjónn og nýr varðstjóri á Hvolsvelli

Sveinn hefur starfað í lögreglunni frá 1999. Sveinn lauk námi í Stjórnun 1, fyrir stjórnendur innan lögreglunnar, s.l. vor. Hann er fyrsti yfirlögregluþjónninn sem tekur til starfa hjá lögreglunni á Hvolsvelli.

Einnig tók til starfa tók Guðmundur Ingi Ingason sem nýr varðstjóri á Kirkjubæjarklaustri frá 1. febrúar s.l. Guðmundur hefur starfað í lögreglunni síðan 1976 og var lengst af hjá lögreglunni í Kópavogi. �?ar starfaði hann í 23 ár en hefur undanfarin 9 ár verið starfandi rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík.

Alexander G. Alexandersson, sem verið hefur aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Vík, með aðsetur á Kirkjubæjarklaustri, og frá áramótum hjá lögreglunni á Hvolsvelli, hætti störfum frá og með 1. febrúar. Alexander sneri á annann starfsvettvang í fjölskyldufyrirtæki. Honum eru þökkuð vel unnin störf í gegnum tíðina, en hann hafði verið í lögreglunni í Vík frá 1997 og þar áður frá 1986 í lögreglunni í Reykjavík .

Nýjustu fréttir

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur opnað fyrir umsóknir
Emil Gautason í lokahóp u-17 fyrir undankeppni EM
Skoðaði bergið og mögulega legu Eyjaganga
Hertar kröfur um gagnsæi sveitarfélaga – geta sætt háum sektum
Leik Fram og ÍBV frestað vegna ófærðar
Milena lék með u-17 í Portúgal
Treg veiði hjá Bergey
71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa jákvæð áhrif
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.