Nýtt skip í þriggja mánaða viðgerð í Noregi
Sigurður VE 15, stærsta skip Ísfélagsins sem kom nýtt til landsins í sumar, er væntanlegt til heimahafnar í Vestmannaeyjum á næstunni eftir viðgerð í Noregi. Alvarleg bilun kom upp í spilkerfi Sigurðar í byrjun september og því hefur viðgerðin í Noregi tekið þrjá mánuði, upphaflega var áætlaður viðgerðartími tvær til þrjár vikur.
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélags Vestmannaeyja segir að stefnt sé að því að sigla skipinu frá Egersund í Noregi á næstu dögum. Eyþór vill ekki fara nánar út í hvers eðlis bilunin var. Hann segir í samtali við Eyjafréttir að áhöfnin hafi leyst af á öðrum skipum félagsins og sinnt verkefnum í tengslum við viðgerðina í Noregi þennan tíma. Allir hafi haft vinnu þrátt fyrir þetta stopp.
Nánar er fjallað um málið í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út síðar í dag, miðvikudag.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.