Ólafur Elíasson vinnur hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey
Ljósmynd: Svavar Steingrímsson

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 2 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Vestmannaeyjabæjar vegna hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Gerður hefur verið samningur við Stúdíó Ólafs Elíassonar um hugmyndavinnuna.

Á næsta ári verða liðin 50 ár frá eldgosinu í Heimaey en gosið stóð frá 23. janúar til 3. júlí 1973. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, undirrituðu í september sl., viljayfirlýsingu um samvinnu og undirbúning viðburða í tilefni tímamótanna og er gerð minnisvarða þar á meðal.

Forsætisráðherra hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um skipun nefndar vegna undirbúnings kaupa og uppsetningu minnisvarðans. Í nefndinni munu auk fulltrúa forsætisráðherra verða skipaðir tveir fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og tveir fulltrúar Alþingis. Auk þess hefur bæjarráð og bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallað um viðburði í tengslum við þessi tímamót.

Ólafur Elíasson hefur þegar heimsótt Vestmannaeyjar til að skoða aðstæður en hann hafði það á orði að erlend grein um hraunkælinguna sem bjargaði innsiglingunni hafi vakið áhuga hans á verkefninu.

Auk gerðar minnisvarðans verður tímamótanna minnst með málstofu um eldgosið í Eyjum og gosið í Surtsey. Þá verður sumarfundur norrænu forsætisráðherranna haldinn í Vestmannaeyjum sumarið 2023, en myndarlegur stuðningur barst frá Norðurlöndunum vegna uppbyggingarinnar í kjölfar gossins, bæði í formi fjárframlags og með ýmsum öðrum hætti.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.