�?lvun, kókaín og ólögleg lagning
Lögreglan hafði í mörg horn að líta í liðinni viku þrátt fyrir að engin alvarleg mál hafi komið upp. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um útköll vegna ölvunar.
Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni og var einn maður handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en hann er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Auk þess er maðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreið mannsins fannst smáræði af ætluðu kókaíni. Málið telst að mestu upplýst.
Alls liggja fyrir níu kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna og má m.a. nefna of hraðan akstur, ólöglega lagningu ökutækja og brot á að virða stöðvunarskyldu.
�?á komu upp þrjú mál þar sem öryggisbúnaði barna í ökutæki var ábótavant en skv. umferðarlögum skal barn undir 135 cm vera í viðurkenndum öryggisbúnaði sem hæfir hæð þess og þyngd. Í ökutækjum má einungis nota öryggis- og verndarbúnað fyrir börn sem uppfyllir kröfur samkvæmt reglum ECE.
Í vikunni verður Grunnskóli Vestmannaeyja settur og má því búast við að gangandi vegfarendum fjölgi á leið til og frá skóla. Lögreglan vill því beina því til ökumanna að fara varlega í umferðinni og þá sérstaklega í kringum skólana. Séstaklega skal minnt á gangbrautarréttinn og eru ökumenn hvattir til að virða hann.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.