Opnir fundir ADHD samtakanna á þriðjudag
ADHD samtökin verða í Vestmannaeyjum í dag, þriðjudag með opna fundi í Safnaðarheimili Landakirkju. Fyrri fundurinn er klukkan 16:30 og er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.
Efni fundarins er Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin? Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari og stjórnarmaður samtakanna og Björk �?órarinsdóttir, formaður samtakanna, kynna þau.
Dagskrá
1. Hvað er ADHD?
Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar
2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum.
Börn, unglingar, fullorðnir.
3. Greining og meðferðarleiðir.
4. Skóli, nám og teymisvinna.
5. Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð.
6. Framtíðarhorfur.
7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
8. Helstu verkefni samtakanna.
Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla
9. Fyrirspurnir
Spjallfundur fyrir foreldra
Klukkan 20:00 í Safnaðarheimili Landakirkju verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta. Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.