Orð í tilefni jóla og nýs árs          

Þegar nýtt ár gengur í garð djarfar fyrir lokum heimfaraldursins. Hann hefur leikið flest ef ekki öll lönd ýmist illa eða fremur grátt. Mannfall vegna Covid-sýkingar, mikið álag á heilbrigðiskerfið og alvarleg vandkvæði í efnahagslífinu lita næstum allt árið 2020. Hér landi hefur faraldurinn tekið mikið á samfélag og einstaklinga. Má gera ráð fyrir, eins þótt ferðaþjónustan, ýmsir aðrir atvinnuvegir og innri stoðir samfélagsins sýni brátt veruleg batamerki, að allnokkur ár þurfi til úrbóta í samfélaginu og til endurgreiðslu fjármuna sem vörðu fólk eins og unnt var, þegar á heildina er litið. Ég tel að bærilega hafi til tekist og stjórnvöld axlað ábyrgðina sína. Lengst af með réttri vástjórnun frá einni viku til annarrar, en þegar leið á með því að leggja línur um framhaldið eftir að veiran hefur beðið ósigur fyrir hugviti og vísindum. Hver bólusetning er sigur í sjálfu sér en um leið áminning um mátt náttúrunnar og nauðsyn þess að lifa og starfa sem sjálfbær hluti hennar án þess að telja sig yfir hana hafin – eða í rétti til að gera sér hana undirgefna. Eitt sinn var það talið hlutverk mannsins.

Stjórnmál lituðu Covid-tímana eins og öll önnur tímabil stórra atburða í sögu okkar. Samstarf þriggja ólíkra flokka hefur leitt til margs konar umbóta og kostað, ef þannig má komast að orði, margar og flóknar málamiðlanir. Það er kjarni samsteypustjórnlistar sem er okkur búin kjörtímabil fram af kjörtímabili. Innviðir hafa styrkst, velferðarkerfið eflst og jafnrétti aukist. Engu að síður þarf enn að bæta kjör nokkurra hópa sem þurfa á sem mestri samfélagsaðstoð að halda. Við þurfum líka að raungera æ betur góða stefnumörkum í málaflokkum eins og orkumálum, orkuskiptum, nýsköpun, ferðaþjónustu, frumatvinnuvegum, menntamálum og heilbrigðismálum – endurskoða og fylgja aðgerðaráætlunum í loftslagsmálum og umhverfisvernd. Það eru frumskilyrði þess að við náum að búa við sjálfbært hringrásarhagskerfi með þátttöku almennings í lipru lýðræði og með upplýstum ákvörðunum. Sameining sveitarfélaga, bætt úrgangsmeðferð, styrkari fjárstuðningur ríkisins og auðlinda- eða umhverfisstefna sveitarfélaga eru allt teikn um félagslegar og grænar framfarir sem ber að fagna.

Hlutverk sveitarfélaga er ítrekað með stofnun og rekstri hálendisþjóðgarðs. Þar eru þau með meirihluta í þeim umdæmisráðum sem semja verndar- og nýtingaráætlanir fyrr sína landshluta inni á öræfum. Þau geta tryggt hefðbundnar nytjar og ýmsa atvinnustarfsemi, að frjáls en þó skipulögð för verði áfram almenningi og ferðamönnum heimil – og allt þetta fari fram með umhverfisvernd og sjálfbærni að leiðarljósi. Aðrar náttúrunytjar geta farið fram samkvæmt landsáætlunum, landsskipulagi og öðrum lögum og reglum sem samkomulag næst um í samfélaginu og á Alþingi. Friðuð svæði og þjóðgarðar eru ríkar auðlindir sem unnt er að nytja í bland við aðrar auðlindir. Þess vegna er sérhvert skref í þessum efnum samfélaginu mikils virði.

Ég sendi öllum lesendum góðar kveðjur í tilefni desemberhátíðanna og óska þeim og þeirra fólki farsældar á nýju ári.

 

Höfundur er þingmaður VG.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.