�?ruggur sigur Eyjamanna á KH - myndir
Karlalið ÍBV í knattspyrnu tók á móti 4. deildar liðinu KH á Hásteinsvelli í kvöld er liðin mættust í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins. �?að er skemmst frá því að segja að Eyjamenn fór með sigur af hólmi en lokatölur voru 4:1.
Líkt og fyrri daginn spilaði veðrið leiðinlega stóran þátt í leiknum en hífandi rokið í Eyjum í kvöld gerði það að verkum að leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Heimamenn í ÍBV byrjuðu á móti vind en þrátt fyrir það lágu þeir á KH allan hálfleikinn. Undir lok hálfleiksins átti framherjinn reyndi Gunnar Heiðar �?orvaldsson skot sem hafnaði í þverslá og ekki löngu seinna komst Arnór Gauti Ragnarsson í ágætis færi en inn vildi boltinn ekki og staðan 0:0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Leikurinn breyttist þó nokkuð í síðari hálfleik en með vindinn með sér þjörmuðu Eyjamenn hressilega að gestunum sem vörðust ágætlega framan af. Kaj Leo í Bartalsstovu braut loks ísinn fyrir Eyjamenn með góðu marki, beint úr aukaspyrnu, á 57. mínútu. Innan við tíu mínútum frá marki Kaj Leo tókst Arnari �?órarinssyni, leikmanni KH, algjörlega upp úr þurru, að prjóna sig upp hægri kantinn en þegar inn í teyginn var komið fór hann illa að ráði sínu og sóknin rann út í sandinn. Annað mark ÍBV kom eftir rúman 70. mínútna leik og var þar að verki framherjinn ungi Breki �?marsson, gott skot og óverjandi fyrir Guðmund Ragnar Vignisson í marki KH. Breki átti svo sannarlega eftir að láta að sér kveða í leiknum en á 84. mínútu leiksins bætti hann við sínu öðru marki og þriðja marki Eyjamanna en stuttu áður hafði skot hans hafnað í þverslá. Undir lok leiks gerði Pablo Punyed út um leikinn með fínu marki en hann hafði einungis verið inná í um fimm mínútur áður en honum tókst að skila boltanum í netið. �?ó niðurstaða leiksins væri löngu ráðin tókst leikmönnum KH samt sem áður að klóra í bakkann á 90. mínútu og minnka muninn niður í þrjú mörk. Nær komust þeir ekki og góður sigur Eyjamanna staðreynd.
Myndir frá leiknum.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.