�?skað eftir frambjóðendum á Vestmannaeyjalistann
Uppstillinganefnd Vestmannaeyjalistans (V) hefur nú hafið undirbúning að móta lista framboðsins en að því standa Björt framtíð, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og óháðir. Sveitastjórnarkosningar fara fram 31. maí næstkomandi en í tilkynningu frá Vestmannaeyjalistanum kemur fram að fjölmargir hafi lýst yfir áhuga á að taka sæti á listanum. �??�?etta sýnir að mikill áhugi er fyrir breiðri samstöðu þeirra sem bjóða vilja upp á annan kost en Sjálfstæðisflokkinn. �?ess vegna gengur Vestmannaeyjalistinn bjartsýnn til kosningabaráttunnar,�?? segir í tilkynningunni en þar er jaframt óskað eftir uppástungum bæjarbúa um frambjóðendur.
Fréttatilkynning Vestmannaeyjalistans
Vestmannaeyjalistinn hefur nú hafið undirbúning fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 31. maí í vor. Björt framtíð, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin- grænt framboð og �?háðir hafa ákveðið að bjóða fram undir merki V listans við kosningarnar. Uppstillingarnefnd hefur þegar hafið störf en hún hefur það hlutverk að gera tillögur að framboðslista og leggja hann fyrir félagsfund Vestmannaeyjalistans til afgreiðslu.
�?egar hafa fjölmargir lýst yfir áhuga sínum á að taka sæti á listanum og ýmsir hafa lýst yfir áhuga á að starfa með listanum og taka þátt í kosningabaráttunni sem fram undan er. �?etta sýnir að mikill áhugi er fyrir breiðri samstöðu þeirra sem bjóða vilja upp á annan kost en Sjálfstæðisflokkinn. �?ess vegna gengur Vestmannaeyjalistinn bjartsýnn til kosningabaráttunnar.
�?ótt margar ábendingar um frambjóðendur hafi borist til uppstillingarnefndar kunna enn að vera einhverjir bæjarbúar sem áhuga hafa á að starfa með listanum eða taka taka þar sæti. �?ess vegna auglýsir uppstillingarnefndin eftir uppástungum bæjarbúa um frambjóðendur. �?eir sem áhuga hafa eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við eitthvert eftirfarandi:
Drífa �?öll Arnardóttir sími: 6592012/ 4812012
Lára Skæringsdóttir sími: 8981806/ 4811720
Sólveig Adólfsdóttir sími: 8642816/ 4811816
Ragnar �?skarsson sími: 6946865/ 4811177
Uppstillingarnefnd Vestmannaeyjalistans

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.