„Ég var gestur á fjölskyldutjaldsvæðinu hjá Þórsheimilinu þjóðhátíðarhelgina og var einnig starfsmaður ÍBV í gæslu á hátíðinni. Við ákváðum að nota fjölskyldutjaldsvæðið sem er bæði í stuttu göngufæri við Dalinn og með þjónustumiðstöð (Þórseimilið) eða öllu heldur að við héldum, að hægt væri að nota,“ segir kona í pósti til Eyjafrétta. Lýsing hennar er ófögur og okkur ekki til sóma.
„Við komum þarna á þriðjudagskvöld og er okkur sagt að það þurfi að borga 2200 krónur á mann á nóttina auk 1300 króna í rafmagn, allt í lagi og gott og gilt en á fimmtudaginn hækkaði gjaldið uppi 3000 krónur á mann fyrir nóttina.
Alveg fáránlegt fyrir sömu þjónustuna sem var svo bara engin, ekkert eftirlit með húsinu alla helgina. Ekkert þrifið og aðkoman eftir því. Hreinn viðbjóður að koma þarna inn eftir vaktina kl 8.00 á morgnana og ætla að skola af sér eftir vakt næturinnar. Fyrir þennan viðbjóð borguðum við 27.000 krónur fyrir helgina og rafmagnið að slá út alla helgina. Spyr ég, fyrir hvað borgaði ég?“ spyr konan og lái henni hver sem vill.
Hún sendi nokkrar myndir úr Þórsheimilinu sem segja meira en mörg orð. „Ég vil koma þessu á framfæri við Eyjamenn og þá sem reka tjaldsvæðið með von um að betur verði gert á næsta ári.“
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst