�?tímabundið verkfall sjómanna hefst kl. 20:00
Kjarasamningar, sem undirritaðir voru í nóvember, á milli Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Sjómannasambands Íslands (SSÍ), Verkalýðsfélags Vestfjarða (VV), Sjómannafélags Íslands (SÍ) og Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur (SVG) voru í dag felldir í atkvæðagreiðslu. Niðurstaða atkvæðagreiðslu vegna kjarasamninga á milli SFS og Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) mun liggja fyrir næstkomandi föstudag, hinn 16. desember.
Kjarasamningar SFS við stéttarfélögin voru undirritaðir hver um sig dagana 11. til 15. nóvember sl. og verkfalli stéttarfélaga sjómanna var frestað í kjölfarið. Rafrænni atkvæðagreiðsla um þessa kjarasamninga lauk kl. 12:00 í dag, hinn 14. desember. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er sú sem áður er greint frá. Sökum þessa hefst ótímabundið verkfall stéttarfélaganna á ný í kvöld kl. 20:00.
Samkvæmt Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS veldur niðurstaðan vonbrigðum: �??Mikil vinna var lögð í samningana og miðað við gerðar kröfur sjómanna telur SFS að komið hafi verið verulega til móts við þær. Er því óljóst á hvaða forsendum sjómenn kjósa að fella gerða samninga. �?sætti, sem ekki er hönd á festandi, er erfitt að lækna. Við tekur hins vegar ótímabundið verkfall, með ófyrirséðu fjárhagslegu tjóni fyrir útgerðir, sjómenn og samfélagið allt. �?að hljóta að vera vonbrigði fyrir alla hlutaðeigandi.�??

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.