Páll Pálsson ÍS orðinn VSV-togarinn Sindri VE
Páll Pálsson ÍS-102 hefur skipt um lit og nafn í dráttarbraut Stálsmiðjunnar í Reykjavík og heitir nú Sindri VE-60. Vinnslustöðin keypti togarann af HG í Hnífsdal. Sindra VE er ætlað að fylla skarð Gullbergs VE sem hefur verið selt og verður afhent nýjum eigendum um mánaðarmótin júlí/ágúst.
Vinnslustöðin er með nýjan ísfisktogara, Breka VE, í smíðum í Kína en dregist hefur að ljúka frágangi og afhenda skipið og systurskip þess, Pál Pálsson ÍS, sem HG í Hnífsdal á. Reiknað er nú með að Breki og Páll komi til heimahafna í haust og Sindri VE brúar líka bil sem myndast hjá VSV vegna tafa á heimkomu Breka.
Skipsnafnið Sindri á sér langa og farsæla sögu hjá Vinnslustöðinni og fyrirtækjum henni tengdri. Fiskiðjan gerði út bát með þessu nafni frá sjötta áratugnum til þess áttunda en frá 1977 átti Fiskimjölsverksmiðjan og síðar Vinnslustöðin togara sem Sindri hét og gerði út fram á tíunda áratug síðustu aldar.
Af vsv.is

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.