Peningar
Peningar eru nokkuð örugglega heitasta umræðuefnið í dag. Aðeins varðandi nýframkomið frumvarp Ríkisstjórnarinnar um niðurfærslu húsnæðisskulda, þá er ég að sjálfsögðu hlynntur þessu, en tek það þó fram að ef ekki verður tekið á verðtryggingunni, að maður tali nú ekki um að seinna komi fram skattareikningur frá ríkinu vegna niðurfærslunnar, þá hafi þetta í raun og veru engan tilgang.
Heitasta umræðuefnið í síðustu viku voru uppsagnir hjá Rúv, þar sem 39 manns var sagt upp og mikil mótmæli við því og umfjöllun, skiljanlega, þó svo að miðað við atvinnusvæði höfuðborgarinnar þetta sé nú ekki stór tala í því samhengi. �?að hefur einmitt vakið athygli mína hér í Vestmannaeyjum lítil, eða réttara sagt engin, umfjöllum um uppsagnir á haustdögum. Sem dæmi þá voru um 40 manns sem misstu vinnuna þegar fiskvinnslan Pétursey lokaði í byrjun september, en hefur sem betur fer eftir því sem mér er sagt, verið reddað vinnu annarstaðar. Einnig misstu amk. 12 sjómenn atvinnuna þegar Kristbjörginni var lagt 1. okt. Í svona litlu bæjarfélagi eins og Vestmannaeyjum hefði maður haldið að þetta myndi teljast til fjölda uppsagna með mikilli umfjöllun í bæjarfélaginu, en um þetta virðist ríkja algjör dauðaþögn, skrítið mál það.
�?g fór að reikna saman svona til gamans, hvar ég gæti hugsanlega fundið upphæðina sem skorið er niður hjá Rúv og sem vantar til þess að hægt sé að halda uppi fullum rekstri á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og viti menn, þetta er sennilega mjög nálægt þeirri upphæð sem nú þegar er búið að setja í að moka sandi í Landeyjahöfn síðustu árin. Maður hlýtur að velta því upp fyrir sér þvílík vitleysa það er að fara þannig með fjármagnið.
Talandi um Landeyjahöfn, þá vildi þannig til að snemma í haust var ég á leiðinni með Herjólfi yfir í Landeyjahöfn, mætti þar stýrimanninum á útleiðinni sem bauð mér að koma upp í brú og standa á milli stýrimannsins og skipstjórans á meðan siglt væri inn í höfnina. �?g verð að segja alveg eins og er að ég dáist að þeim fyrir þetta afrek að ná að sigla 70 metra ferju inn um 90 metra innsiglingu án þess að lenda í meira tjóni heldur en nú þegar er orðið. En sorgarsaga Landeyjahafnar mun vist, að öllu óbreyttu, halda áfram með tilheyrandi peningaaustri.
Eitt enn varðandi peninga. Nú er ljóst að það stefni í að fara í amk. um eða yfir milljarð í þessa svokölluðu Eldheima, sem ég ætla rétt að vona að muni þá skila einhverju á næstu árum. En ég lenti á spjalli við smiði um helgina sem sögðu mér það, að það væri verið að nota efni í Eldheima sem væri ekki ryðfrítt og þetta myndi ryðga niður á skömmum tíma, sem þýðir, ef rétt er, aukið fjármagn til viðhalds á næstu árum, vonandi er þetta ekki rétt.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.