Prófa flugeldana um níu í kvöld
Björgunarfélag Vestmannaeyja mun prófa flugeldana í kvöld, um níuleytið. Um er að ræða litla flugeldasýningu sem haldin er ár hvert við skátaheimilið en sýningin vekur gjarnan mikla athygli, enda ekki allir sem búast við flugeldasýningu á þessum tíma. Adolf �?órsson, formaður Björgunarfélagsins segir flugeldasöluna hafa gengið vel. �??Veðurspáin fyrir gamlárskvöldið var eitthvað að hrekkja okkur en spáin hefur batnað og salan hefur tekið við sér eftir það. Hér er allt á fullu og allir í góðum gír, tilbúnir að skjóta upp flugeldum og kveðja þannig gamla árið og heilsa því nýja. �?að er músík í okkar eyrum,” sagði Adolf að endingu.
Flugeldasalan er opin í kvöld til klukkan 21:00. Á morgun, sunnudag og á mánudag er svo opið 10 til 21 og á Gamlársdag er opið frá 9 til 16.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.