Ráðherra sýnir klærnar - Tvöfaldar veiðigjaldið á næsta ári
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra birti í dag reglugerð um veiðigjald fyrir komandi fiskveiðiár. Miðað við áætlað aflamark, verður gjaldið um það bil 10,5 til 11,0 milljarðar króna, sem væri hækkun um 6 milljarða frá yfirstandandi fiskveiðiári, eða ríflega tvöföldun. Hækkun veiðigjalds vegna þorsks nemur 107%, ýsu 127% og makríls 18%.
�?etta kemur fram á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í fiskiðnaði og lítil hrifning þar á bæ með þessa ákvörðun ráðherrans sem þarna sýnir klærnar.
�??Reikniregla veiðigjalds fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 byggist á gögnum Hagstofu Íslands frá árinu 2015. �?að gerir það að verkum að gjaldið endurspeglar ekki rekstrarskilyrði greinarinnar á hverjum tíma. �?ví getur hagnaður verið að minnka á sama tíma og veiðigjald er að hækka, og öfugt. �?annig háttar til núna; álagning veiðigjalds miðast við gott rekstrarár, en gjaldið kemur til greiðslu þegar mun verr árar. Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi hafa versnað og ekki er útilokað að álagning veiðigjalds fyrir næsta fiskveiðiár muni reynast einhverjum smærri og meðalstórum útgerðum ofviða. Slíkt gæti aukið samþjöppun í sjávarútvegi,�?? segir á heimasíðunni.
�??�?etta er mikil hækkun sem mun koma hart niður á fjölmörgum útgerðum og þær eru misjafnlega í stakk búnar til að standa undir gjaldinu. Hjá sumum útgerðum getur hækkunin verið allt að fjórföld. Álagningin byggist á gömlum afkomutölum, eins og undanfarin ár, en aðstæður hafa breyst mjög til hins verra á liðnum misserum; gengi krónunnar hefur styrkst og tekjur gjaldeyrisskapandi fyrirtækja dregist verulega saman. Á sama tíma hefur kostnaður í íslenskum krónum, eins og vegna aðfanga og launa, hækkað mikið,�?? segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.
Samkvæmt lögum greiða lögaðilar fiskiskipa veiðigjald, en þeir eru nú hátt í eitt þúsund. Beint samband er á milli hagnaðar fyrirtækja og veiðigjalds. Greiðslurnar fyrir næsta fiskveiðiár nema þannig um þriðjungi af heildarhagnaði útgerða árið 2015. �?á er hagnaður í fiskvinnslu einnig reiknaður inn í veiðigjald. �?að leiðir til þess að hluti þeirra sem greiðir veiðigjald, greiðir það vegna hagnaðar sem myndast í óskyldum fyrirtækjarekstri. Við bætast svo aðrar opinberar greiðslur, eins og tekjuskattur, tryggingagjald, olíugjald og aflagjöld.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.