Ráðuneytið óskar eftir afstöðu HS Veitna
GÞÞ_IMG_4317
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Eyjar.net/ÓPF

Illa hefur gengið að fá rökstuðning frá HS Veitum fyrir miklum hækkunum fyrirtækisins á gjaldskránni í Eyjum umfram önnur svæði. Orkustofnun gat ekki varpað skýru ljósi á gjörðir fyrirtækisins, sem hefur einokun á þessum markaði. Vísuðu forráðamenn stofnunarinnar á umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið.

Í lok síðasta mánaðar sendi Eyjar.net fyrirspurnir vegna málsins í umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið.

Í svari umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins til Eyjar.net segir að ráðuneytið hafi til skoðunar hvort að umbeðnar upplýsingar séu upplýsingar sem rétt sé að takmarka á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga og hefur óskað eftir afstöðu HS Veitna til beiðni Eyjar.net, í samræmi við 2. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, en þar er kveðið á um að áður en tekin sé ákvörðun um aðgang að gögnum sem geta varðað einkahagsmuni getur stjórnvald, eða sá sem hefur beiðni til afgreiðslu, skorað á þann sem upplýsingar varða að upplýsa hvort hann telji að þær eigi að fara leynt.

Hafa 7 daga til að svara erindinu

Ráðuneytið hefur veitt HS Veitum 7 daga frest til að svara erindinu. Áréttað er að ráðuneytið er ekki bundið af afstöðu HS Veitna til beiðninnar og mun leggja sjálfstætt mat á hana. Farið verður hratt og vel í þá vinnu og verður fyrirspurn þinni svarað þegar ákvörðun ráðuneytisins liggur fyrir, segir í svari ráðuneytisins.

Hér að neðan má sjá 9. gr. upplýsingalaga.

9. gr. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.
Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga [virka] 1) fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.

https://eyjar.net/lodin-svor-orkustofnunar-til-eyjamanna/

https://eyjar.net/kalda-vatnid-468-dyrara-i-eyjum/

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.