Ræstingar við HSU boðnar út
Starfsstöð Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum.

Ríkiskaup, fyrir hönd  Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, kt. 6708042750, óska eftir tilboðum í ræstingu á húsnæði stofnunarinnar í Vestmannaeyjum og Selfossi. Þannig hefst frétt á vefnum útboðsvefur.is. Þar kemur einnig fram að útboðið hafi verið auglýst í Stjórnartíðindum ESB. Eyjafréttir fjölluðu um þessi mál í vor fyrst um áformaðar uppsagnir ræstingarfólks og hörð viðbrögð bæjarráðs og verkalýðsfélaga. Þeim áformum var síðar slegið á frest en nú eru þrifin komin í útboð og því ljóst að breytingar verða á starfsmannahaldi.

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur ekkert verið rætt við starfsfólk sem starfar við ræstingar í Vestmannaeyjum af yfirstjórn stofnunarinnar frá því í vor. Komu þessar fréttir því flatt upp á starfsfólkið en 7-8 manns starfa við ræstingar á HSU í Vestmannaeyjum flestir í 80% starfi.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.