Reyna að kaupa leik­ina
�?víst er hvort Eyja­menn fara til Ísra­els í úti­leik­inn meðan ástandið í land­inu er eins og það er. Knatt­spyrnu­sam­band Evr­ópu, UEFA, leyf­ir ísra­elsk­um liðum ekki að spila heima­leiki sína í Ísra­el að svo stöddu af ör­ygg­is­ástæðum og lík­legt er að sama sé upp á ten­ingn­um hjá Evr­ópska hand­knatt­leiks­sam­band­inu. �?etta kemur fram á mbl.is en ÍBV dróst gegn ísraelska liðinu Hapoel Rishon LeZion í EHF-bikarnum. �??�?etta var eitt­hvað sem maður vildi alls ekki fá. �?etta var sko eng­inn óska­drátt­ur,�?? sagði Gunn­ar Magnús­son, þjálf­ari karlaliðs ÍBV á mbl.is.
�??Við mun­um klár­lega skoða það hvort við get­um keypt heima­leik­inn þeirra til Vest­manna­eyja. �?etta yrði nátt­úr­lega rán­dýrt ferðalag. �?annig að við mun­um ef­laust leita ein­hverra leiða til að spila báða leik­ina heima eða úti, ef ástandið er í lagi þarna í Ísra­el þegar kem­ur að leikj­un­um. En eins og staðan er akkúrat núna, trúi ég því ekki að það verði ein­hverj­ir leik­ir í Ísra­el. En það er ennþá einn og hálf­ur mánuður í þetta, þannig að maður veit ekk­ert hvað ger­ist í millitíðinni,�?? sagði Gunn­ar.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.