Ríkið greiði að hámarki 800 milljón krónur fyrir vatnslögnina

Vatnsleiðsla til Vestmannaeyja var meðal erinda á fundi bæjarstjórnar sl. fimmtudag.

Þann 3. júlí sl., undirrituðu þau Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, viljayfirlýsingu um þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Vestmannaeyja.

Fram kemur í fundargerð að almennt ber sveitarfélögunum skylda til að fullnægja vatnsþörf í þéttbýli, skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, í þeim tilgangi að fullnægja vatnsþörf almennings, heimila og atvinnufyrirtækja. Rekstur vatnsveitu er fjármagnaður með vatnsgjaldi sem lagt er á notendur veitunnar og á að standa undir rekstri hennar.

Aðeins er ein vatnslögn milli lands og Eyja sem virkar og því getur skapast almannavarnarástand í Vestmannaeyjum fari sú leiðsla og um mannvirki til að tryggja almannavarnir gilda aðrar reglur, með kostnaðarþátttöku ríkisins. Með vísan til almannavarnasjónarmiða og í ljósi þeirrar sérstöðu Vestmannaeyjabæjar að vera alfarið háður flutningi vatns um leiðslu frá fastalandinu, hafa innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að undirrita viljayfirlýsingu þess efnis að ríkissjóður muni taka þátt í kostnaði við endurnýjun vatnslagnar til Vestmannaeyja. Einnig er horft til þess að kostnaður legðist að öðrum kosti af mun meiri þunga á íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum en raunin er í öðrum sveitarfélögum landsins sem ekki búa við sömu landfræðilegu sérstöðu og Vestmannaeyjabær.

Samkvæmt viljayfirlýsingunni er ráðherrarnir sammála um að ríkissjóður greiði allt að 80% þess kostnaðar af framkvæmdinni sem er umfram 1.200 mkr., en þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur 800 m.kr. Greiðist framlagið til sveitarfélagsins við lok framkvæmda þegar leiðslan hefur verið tekin í notkun og endanlegur kostnaður liggur fyrir.

Starfshópur Vestmannaeyja um vatnsleiðslu til Vestmannaeyja hefur þegar fundað með Páli Erland, forstjóra HS-veitna, um þessa viljayfirlýsingu og framhald verkefnisins.

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.