Rödd fólksins - opinn fundur um samgöngumál 10. maí
Miðvikudaginn 10. maí verður haldinn hér í Eyjum opinn fundur um samgöngumál. �?ar gefst bæjarbúum tækifæri til að spyrja fulltrúa ríkis og bæjar út í samgöngumálin í nútíð og framtíð. Auk þess verða fulltrúar bæjarbúa með framsögu.
Yfirskrift fundarins er �??Rödd fólksins�?� og verður hægt að bera upp fyrirspurnir á fundinum.
�?eir sem standa að fundinum eru Eyjar.net, Eyjafréttir og Ásmundur Friðriksson.
Ástæður fyrir þessum fundi eru fyrst og fremst að skapa svigrúm fyrir �??Rödd fólksins�?? til að segja sína skoðun og spyrja spurninga um þjónustu, kostnað og áætlun Herjólfs. Samgöngur við Vestmannaeyjar eru og verða grunnþjónusta sem er afar mikilvæg og skiptir máli fyrir framtíð Eyjanna og ekki síst unga fólksins sem við viljum að fá tækifræin til góðs lífs á heimaslóð.
Nú er hafin smíði nýrrar ferju sem kemur væntanlega á næsta ári og mikilvægt að áður en hún kemur hafi fólki í Eyjum tækifæri til að segja skoðun sína á tíðni ferða, kostnaði við ferðir og fá upplýsingar frá fulltrúum opinberra aðila og þeirra sem reka ferjuna milli lands og Eyja.
Framsögumenn fara yfir væntingar fólksins og það verður grundvöllurinn af fjörugum umræðunum þegar fundarmenn fá tækifæri til að spyrja þá spjörunum úr. Fundartíminn verður takmarkaður við tímann frá 18.30-20.00 og við nýtum hann vel til að ná markmiðum fundarins að ræða um bætta þjónustu og kostnað vegna hans og gefum Rödd fólksins tækifæri til að hafa áhrif..
Á næstu dögum munu bæði Eyjar.net og Eyjafrettir.is hita upp fyrir fundinn með viðtölum við þá sem koma til með að flytja erindi á fundinum.
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.