Safnahelgi - Setning - Hugleikur - Árni �?órarins - Páll Kr.
Formleg setning Safnahelgar verður í dag klukkan 17.00 við Stafkirkjuna þar sem jazz/funk tríóið Eldar spilar. Klukkutíma seinna opnar Hugleikur Dagsson sýninguna WHERE´S GOD í tilefni af útkomu samnefndrar bókar sinnar. Kl: 20:30 í Eldheimum lesa Árni �?órarinsson og Páll Kristinn Pálsson úr nýjum bókum sínum. Í framhaldinu verða tónleikar.
Árni �?órarinsson og Páll Kristinn eru þrautreyndir á ritvellinum sem blaðamenn og rithöfundar. Núna er að koma út bókin 13 dagar eftir Árna og �?sk eftir Pál Kristinn. Einar blaðamaður á Síðdegisblaðinu hefur marga fjöruna sopið í bókum Árna, allt hörkuspennandi sögur úr íslenskum samtíma og lýsa af stílgáfu og næmi þeirri spillingu sem leynist í hversdagslífinu, heimi hákarla og hornsíla.
�?sk er ellefta bók Páls Kristins og í viðtali við DV segir hann spurður um efni bókarinnar: �??�?etta er þroskasaga manns sem veikist alvarlega á fertugsaldri og þegar hann horfist í augu við þá staðreynd að hann muni hugsanlega deyja vaknar hjá honum löngun til að börnin hans viti hvaða manneskju hann hefur haft að geyma innra með sér. �?au eru of ung til að skilja um hvað málið snýst og því hefst hann handa við að skrifa ævisögu sína sem þeim er ætlað að lesa þegar þau hafa öðlast tilhlýðilegan aldur og þroska.
Sýning Hugleiks er haldin í tilefni af útgáfu bókarinnar ,,Where´s God�?� sem er nýjasta teikniverk Hugleiks Dagssonar. Hér sameinar hann áhuga sinn á Valla úr ,, Hvar er Valli?�?? bókunum og vangaveltur sínar um tilveru Guðs. Hér getur lesandinn sjálfur spreytt sig á þessari leit sem svo margir spekingar og fræðingar hafa lagt í. Hvar er Guð eiginlega? Seg þú mér!

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.